Sýning á verkum nemenda í 8. - 10. bekk úr Grunnskólunum á Hellu, Hvolsskóla, Laugalandi í Holtum og Víkurskóla sem tóku þátt í listasmiðjum á vegum Listalestarinnar fer fram í Hvolnum, Hvolsvelli 17. apríl kl 15:00.

Listalestin er verkefni unnið að listkennslunemum frá Listaháskóla Ísland sem á hverju ári halda listasmiðjur fyrir grunnskóla utan höfuðborgarsvæðisins með áherslu á samruna listgreina. 

Verkefnið er unnið í samstarfi við list fyrir alla.

 

Aðgangur er ókeypis.

Öll velkomin