sorpstöð

Allan annan úrgang en heimilisúrgang, s.s. timbur, málma, grófan úrgang o.fl., skal fara með á gámavöll á Strönd. Einnig er tekið á móti heimilisúrgangi á gámavelli. Húsráðanda er heimilt að afsetja á sjö daga fresti heimilisúrgang allt að 2 m³ án gjaldtöku. Gjald er að öðru leyti tekið fyrir úrgang skv. vigt og gjaldskrá. Aðal Gámavöllur sveitarfélagsins er á Strönd á Rangárvöllum. 

Fyrirtæki, á sama hátt og frístundahúsaeigendur, annast sjálf um sín sorpmál. Fyrirtæki geta valið að fara með flokkaðan úrgang á gámavöllinn á Strönd eða kaupa þjónustu hjá verktökum sem slíka þjónustu bjóða. Fyrirtæki greiða fyrir allan gjaldskyldan úrgang, skv. vigt og gjaldskrá, sem komið er með á Strönd. 

Símanúmer á Strönd: 487 5157

Opnunartími á Strönd: september - apríl

Mánudaga: kl. 13:00 - 17:00

Þriðjudaga: kl. 13:00 - 17:00

Miðvikudaga: kl. 13:00 - 17:00

Fimmtudaga: kl. 13:00 - 17:00

Föstudaga: kl. 13:00 - 17:00

Laugardaga: kl. 11:00 - 15:00

 

Opnunartími á Strönd: maí - ágúst

Mánudaga: kl. 13:00 - 17:00

Þriðjudaga: kl. 13:00 - 17:00

Miðvikudaga: kl. 13:00 - 17:00

Fimmtudaga: kl. 13:00 - 17:00

Föstudaga: kl. 13:00 - 17:00

Laugardaga: kl. 10:00 - 16:00